Spilagjöf
Spilunum er skipt milli spilaranna tveggja og eru spilin lögð á hvolfi á borðið, sem stokkur.
Framgangur spilsins
Spilarar skiptast á að fletta upp af sínum bunka. Eitt spil er tekið upp í einu og lagt á mitt borðið, sem kastbunki. Sá byrjar sem ekki gaf.
Þegar spilin tía til ás koma upp hjá öðrum hvorum spilaranum skal gefa ákveðin merki.
Þegar þessi spil koma upp:
Tía: Leggja flatan lófa ofan á bunkann (yfirleitt skellir fólk nú lófanum!)
Gosi: segja Hæ gosi! (Fólk hrópar þetta líka yfirleitt!)
Drottning: Blístra
Kóngur: Bera hönd að enni að hermannasið (passa að slá sig ekki í andlitið!)
Ás: Standa upp.
Sá tekur bunkann sem er fyrri til að gefa merki og eru vinningsspilin sett neðst í bunkann sem spilarinn hafði fyrir framan sig. Ef báðir spilararnir eru alveg jafn fljótir að gefa merki er bunkinn látinn liggja áfram á borðinu.
Sá sem endar með bunkann allan í lokin vinnur.